Bergáskvöld í Reykjanesbæ.

BERGÁSKVÖLDIN ERU VINSÆLASTA SKEMMTUN SUÐURNESJA UNDANFARIN 20 ÁR ! ALDURSTAKMARK ER 30. ÁRA +. "FIMM" tíma "DANS" sprengja & "SKEMMTILEGT" fólk á RÁNNI Í REYKJANESBÆ - Fyrsta Laugardaginn í Maí ár hvert.

Bergáskvöld í Reykjanesbæ.


Bergáskvöldin eru haldin á Ránni í Reykjanesbæ fyrsta Laugardag í Maí á ári hverju. Aldurstakmark er 30 ára +, spiluð er skemmtileg danstónlist frá tímum Bergás sem var til húsa í kjallara Nýja Bíós við Hafnargötu 33, miðaverð er 2,900.- í forsölu í Gallerí Hafnargötu 32 og á Ránni í 10 daga en svo er miðaverðið í 4 klukkutíma á 3,900.- við innganginn. Þessi böll hafa verið haldi undanfarin 20 ár af ýmsum aðilum, en hefur Valþór Ólason haldið þau undanfarin 10 ár bæði ýmist í Offiseraklúbbnum á Ásbrú, í Stapa Njarðvík og nú á Ránni Keflavík sem er skemmtilegur staður og ekkert ósvipaður Bergás eins og það var á sínum tíma, lágt til lofts og skemmtileg stemming hjá skemmtilegu fólki sem hittist þar hverja helgi og nú hittist fólk á þessum böllum ár hvert. Miðaverð hefur verið það sama undanfarin 10. ár og hafa þeir sem að þessu koma kappkostað að hafa bestu hjómbæði sem völ er á og fullkomið ljósashow á þessum skemmtunum, oft hafa verið skemmtilegar uppá komur frá frægum innlendum skemmtikröftum. Við biðjum fólk að vera duglegt við okkur að bjóða vinum sínum á þessa síðu og merkja fólk sem þið þekkið á myndum á síðunni, þessari frábæru síðu sem heldur utan um þessi skemmtilegu kvöld með myndum og ýmsu öðru sem viðkemur að halda þessum kvöldum áfram vinsælum. Þessi helgi hefur verið valin á Suðurnesjum af fólki til að halda árganga og fermingar hittinga svo sé hægt að fara á almennilegt ball þegar þær skemmtanir eru búnar sem yfirleitt uppúr miðnætti en Bergásböllin eru alltaf til kl. 04:00 og opnar húsið kl. 22:00. Góða skemmtun á þessum böllum í framtíðinni. Kær kveðja. Valþór Ólason og Safír Steinn Valþórsson.

    Event, Dance & Night Club

      Facebook

      Rain, Hafnargata 19, Reykjanesbær., Keflavík, Iceland

  Innenparkplätze

Hinterlassen sie einen kommentar


Andere in der Umgebung

Loksins Bar

Keflavík

Cafe Stefnumót

Keflavík

Ráðhúskaffi

Keflavík

Segafredo

Keflavík


"Ihre Lieblingsorte in einem Klick"